Kynning á starfsemi sendiskrifstofa
Kynning (1801079)
Utanríkismálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
22.03.2021 | 22. fundur utanríkismálanefndar | Kynning á starfsemi sendiskrifstofa Á fund nefndarinnar kl. 9:20 kom Kristín A. Árnadóttir verðandi sendiherra Íslands í Vín sem kynnti starfsemi sendiskrifstofunnar og svaraði spurningum nefndarmanna. Kl. 9:40 kom á fund nefndarinnar Guðni Bragason verðandi sendiherra Íslands í Nýju Delí sem kynnti starfsemi sendiskrifstofunnar og svaraði spurningum nefndarmanna. |
04.12.2020 | 10. fundur utanríkismálanefndar | Kynning á starfsemi sendiskrifstofa Á fund nefndarinnar komu Stefán Haukur Jóhannesson, Sturla Sigurjónsson og Þórdís Sigurðardótir frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir fóru yfir starfsemi sendiskrifstofa í London, Tókýó og Úganda og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
31.08.2020 | 44. fundur utanríkismálanefndar | Kynning á starfsemi sendiskrifstofa Á fund nefndarinnar komu Kristján Andri Stefánsson, Unnur Orradóttir Ramette og Ragnhildur Arnljótsdóttir frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir fóru yfir starfsemi sendiskrifstofa í Brussel, París og Strassborg og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
13.05.2020 | 32. fundur utanríkismálanefndar | Kynning á starfsemi sendiskrifstofa Nefndin ræddi við Auðunn Atlason, Árni Þór Sigurðsson og Hannes Heimisson frá utanríkisráðuneyti í gegnum fjarfundarbúnað. |
04.02.2019 | 15. fundur utanríkismálanefndar | Kynning á starfsemi sendiskrifstofa Á fund nefndarinnar kom Þórir Ibsen sendiherra. Gesturinn gerði grein fyrir störfum sínum framundan og svaraði spurningum nefndarmanna. |
28.05.2018 | 31. fundur utanríkismálanefndar | Kynning á starfsemi sendiskrifstofa Á fund nefndarinnar komu Árni Þór Sigurðsson, Kristín A. Árnadóttir, Sigríður Snævarr og Þórður Ægir Óskarsson frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir gerðu grein fyrir störfum sínum framundan og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
09.05.2018 | 30. fundur utanríkismálanefndar | Kynning á starfsemi sendiskrifstofa Á fund nefndarinnar komu Guðmundur Árni Stefánsson og Unnur Orradóttir frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir kynntu starfsemi sendiráðanna á Indlandi og í Úganda og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
02.05.2018 | 28. fundur utanríkismálanefndar | Kynning á starfsemi sendiskrifstofa Á fund nefndarinnar komu Bergdís Ellertsdóttir og Gunnar Pálsson frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir kynntu starfsemi sendiskrifstofa í New York og Brussel og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
25.04.2018 | 26. fundur utanríkismálanefndar | Kynning á starfsemi sendiskrifstofa Á fund nefndarinnar kom Guðni Bragason frá utanríkisráðuneyti og kynnti starfsemi sendiskrifstofu Íslands hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) í Vínarborg og svaraði spurningum nefndarmanna. |
17.01.2018 | 3. fundur utanríkismálanefndar | Kynning á starfsemi sendiskrifstofa Á fund nefndarinnar komu Elín Flygenring og Gunnar Snorri Gunnarsson frá utanríkisráðuneyti. Gestirnir kynntu starfsemi sendiskrifstofa Íslands í Tókýó og Peking og svöruðu spurningum nefndarmanna. |